7.11.2023 | 12:08
Fjölgun ríkisstarfsmanna og mannréttindabrot
Enn ein aðgerðin til jafna stöðu með mismunun. Hvað er svo næst? Margþrepaskipt áfengisgjaldakerfi eftir stærð fyrirtækja?
Auknar flækjur í umhverfi fyrirtækjarekstrar koma fram í fjölgun ríkisstarfsmanna og sóun á tíma atvinnurekenda. Þarf ekki nefndir og starfshópa til að skilgreina hvað telst lítið fyrirtæki og hvað stórt? Munu ekki einhver fyrirtæki brytja sig niður í smærri einingar til að losna við mestu skattpíninguna? Með tilheyrandi kostnaði fyrir fyrirtækin og ríkið. Fleiri fyrirtæki fleiri ríkisstarfsmenn. Flóknari reglur fleiri ríkisstarfsmenn.
Maður gat átt von á svona rugli frá hinum íslenska Kim Jong Un en ekki ráðherra úr Sjálfstæðisflokknum.
Það er mikil þörf á að einfalda umhverfi atvinnurekstrar en þetta er skólabókardæmi um óheilbrigða mismunun og aukið flækjustig.
Í guðana bænum brjótið odd á oflæti ykkar og dragið þessa tillögu til baka.
Lækka áfengisgjald á minni aðila á næsta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ef þið viljið jafna stöðu lítilla og stórra fyrirtækja á heilbrigðan hátt leggið þá niður útvarpsgjaldið. Það jafnar stöðuna, eykur réttlæti og einfaldar kerfið.
Guðmundur K Zophoníasson, 7.11.2023 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.