Veikburða hlutabréfamarkaður

Umhverfi fjárfesta á Íslandi er verra en það var fyrir 25 árum.  Þá voru eflaust margir bjartsýnir á að tölvutæknin myndi á næstu árum stórbæta stöðuna. Það hefur aldeilis ekki gerst.  Tæknin hefur jafnvel verið notuð gegn fjárfestum.  Dæmi um slíkt er tilkoma vörslugjalda sem lögð eru á hlutafjáreign.  Gjöldin hamla samkeppni því þau eru einstaklega ógegnsæ og óþörf aukagjöld sem torvelda samanburð kjara.  Í sumum tilfellum er um mjög háar fjárhæðir að ræða og því hugsanlegt að hægt sé að líta á þau sem ólöglega skattheimtu, hlutabréfaeignarskatt.  í 40. Grein stjórnarskrár segir að engan skatt megi á leggja nema með lögum.

Grundvallaratriði í farsælum viðskiptasamböndum eru fyrirsjáanleiki og gegnsæi. Þetta eru einnig grundvallaratriði í siðmenningu.  Vörslugjöldin ganga gegn þessum grundvallaratriðum.

Auk þess hafa vörslugjöldin eftirfarandi skaðleg áhrif:

A. Auka bókhalds- og reikningshaldskostnað.

B. Auka uppgjörs- og endurskoðunarkostnað.

C. Auka kostnað við framtalsgerð, bæði einstaklinga og fyrirtækja.

D. Auka vinnu við skatteftirlit og fjölga ríkisstarfsmönnum.

E. Hækka fjármagnstekjuskatt af hlutabréfaviðskiptum einstaklinga.  Vörslugjöld koma strangt til tekið ekki til lækkunar á skattstofni til fjármagnstekjuskatts eins og kaup- og söluþóknanir af hlutabréfaviðskiptum.

F. Valda vanlíðan og óöryggi fjárfesta.

G. Auka kostnað hjá bönkum og öðrum verðbréfafyrirtækjum.  Flæking á einföldum hlutum eykur kostnað.

Vörslugjöldin eru líklega ein af stærri ástæðum fyrir veikburða hlutabréfamarkaði.  Vel hugsanlega stærsta ástæðan.

 

 


mbl.is Veikburða hlutabréfamarkaður áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólgubomban Lilja

Lilja Dögg gösslast um allt.  Hún býr til flækjur og eys fjármunum skuldsetts ríkissjóðs í allar áttir.  Hún jafnvel gaf útlendum framleiðendum True Detective þáttanna sem nam 35% af framleiðslukostnaði þáttanna á Íslandi.  Enginn í ríkisstjórn Íslands nær að halda aftur af manneskjunni!


mbl.is Kostnaður listamannalauna hækki um 40%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi á leið í forsetaframboð

Nú þegar mannréttindi eiga undir högg að sækja væri gott að fá mannréttindasinnaðan forseta með sterka réttlætiskennd.  Arnar Þór er slíkur maður.


mbl.is Arnar Þór kynnir „stórar ákvarðanir“ á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Unnið gegn verðbólgu og fátækt

Frábær leið til að vinna gegn verðbólgu og fátækt væri að banna alla opinbera styrki til fjölmiðla og leggja RÚV niður.  Góð dæmi um hve ríkisfjölmiðlar eru slæmir má sjá í helstu fasistaríkjunum.


mbl.is Minni miðlar fá hlutfallslega meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölgun ríkisstarfsmanna og mannréttindabrot

Enn ein aðgerðin til jafna stöðu með mismunun.  Hvað er svo næst? Margþrepaskipt áfengisgjaldakerfi eftir stærð fyrirtækja?

Auknar flækjur í umhverfi fyrirtækjarekstrar koma fram í fjölgun ríkisstarfsmanna og sóun á tíma atvinnurekenda.  Þarf ekki nefndir og starfshópa til að skilgreina hvað telst lítið fyrirtæki og hvað stórt?  Munu ekki einhver fyrirtæki brytja sig niður í smærri einingar til að losna við mestu skattpíninguna?  Með tilheyrandi kostnaði fyrir fyrirtækin og ríkið. Fleiri fyrirtæki fleiri ríkisstarfsmenn. Flóknari reglur fleiri ríkisstarfsmenn.

Maður gat átt von á svona rugli frá hinum íslenska Kim Jong Un en ekki ráðherra úr Sjálfstæðisflokknum.

Það er mikil þörf á að einfalda umhverfi atvinnurekstrar en þetta er skólabókardæmi um óheilbrigða mismunun og aukið flækjustig.

Í guðana bænum brjótið odd á oflæti ykkar og dragið þessa tillögu til baka.


mbl.is Lækka áfengisgjald á minni aðila á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband