19.5.2025 | 16:46
Veikburða hlutabréfamarkaður
Umhverfi fjárfesta á Íslandi er verra en það var fyrir 25 árum. Þá voru eflaust margir bjartsýnir á að tölvutæknin myndi á næstu árum stórbæta stöðuna. Það hefur aldeilis ekki gerst. Tæknin hefur jafnvel verið notuð gegn fjárfestum. Dæmi um slíkt er tilkoma vörslugjalda sem lögð eru á hlutafjáreign. Gjöldin hamla samkeppni því þau eru einstaklega ógegnsæ og óþörf aukagjöld sem torvelda samanburð kjara. Í sumum tilfellum er um mjög háar fjárhæðir að ræða og því hugsanlegt að hægt sé að líta á þau sem ólöglega skattheimtu, hlutabréfaeignarskatt. í 40. Grein stjórnarskrár segir að engan skatt megi á leggja nema með lögum.
Grundvallaratriði í farsælum viðskiptasamböndum eru fyrirsjáanleiki og gegnsæi. Þetta eru einnig grundvallaratriði í siðmenningu. Vörslugjöldin ganga gegn þessum grundvallaratriðum.
Auk þess hafa vörslugjöldin eftirfarandi skaðleg áhrif:
A. Auka bókhalds- og reikningshaldskostnað.
B. Auka uppgjörs- og endurskoðunarkostnað.
C. Auka kostnað við framtalsgerð, bæði einstaklinga og fyrirtækja.
D. Auka vinnu við skatteftirlit og fjölga ríkisstarfsmönnum.
E. Hækka fjármagnstekjuskatt af hlutabréfaviðskiptum einstaklinga. Vörslugjöld koma strangt til tekið ekki til lækkunar á skattstofni til fjármagnstekjuskatts eins og kaup- og söluþóknanir af hlutabréfaviðskiptum.
F. Valda vanlíðan og óöryggi fjárfesta.
G. Auka kostnað hjá bönkum og öðrum verðbréfafyrirtækjum. Flæking á einföldum hlutum eykur kostnað.
Vörslugjöldin eru líklega ein af stærri ástæðum fyrir veikburða hlutabréfamarkaði. Vel hugsanlega stærsta ástæðan.
![]() |
Veikburða hlutabréfamarkaður áhyggjuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)